Haukar í undanúrslit

Dýrfinna Arnardóttir átti ágætan leik hjá Haukum.
Dýrfinna Arnardóttir átti ágætan leik hjá Haukum. Árni Sæberg

Haukar urðu í dag annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Maltbikars kvenna í körfubolta með 71:63 sigri á Breiðabliki í Kópavogi. 

Breiðablik er í 2. sæti í 1. deildinni á meðan Haukar eru í næstneðsta sæti Dominos-deildarinnar. 

1. deildar liðið lét Haukana heldur betur hafa fyrir sigrinum. Haukar byrjuðu þó töluvert betur og höfðu 38:19 forystu í hálfleik. 

Það ber að hrósa Blikunum sem komu til baka í seinni hálfleik og að lokum munaði aðeins átta stigum á liðunum. 

Sóllilja Bjarnadóttir skoraði 20 stig fyrir Breiðablik og Þóra Kristín Jónsdóttir 17 fyrir Hauka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert