Snæfell mætir Skallagrími – KR gegn Val

KR-ingar eru ríkjandi bikarmeistarar, sem og reyndar Íslands- og deildarmeistarar.
KR-ingar eru ríkjandi bikarmeistarar, sem og reyndar Íslands- og deildarmeistarar. mbl.is/Golli

Dregið var til undanúrslita Maltbikars karla og kvenna í körfubolta í höfuðstöðvum Ölgerðar Egils Skallagrímssonar í dag.

Í undanúrslitum kvenna mætast Skallagrímur og meistarar Snæfells annars vegar og hins vegar Keflavík og Haukar.

Hjá körlunum mæta Valsmenn meisturum KR og í hinni undanúrslitarimmunni eigast við Þór Þorlákshöfn og Grindavík. 

Valur er eina 1. deildarliðið sem enn er með í keppninni en liðið hefur slegið út þrjú úrvalsdeildarlið á leið sinni í Laugardalshöllina; Snæfell, Skallagrím og Hauka. Er það einsdæmi hjá 1. deildarliði.

Undanúrslitaleikirnir í kvennaflokki fara fram miðvikudaginn 8. febrúar og undanúrslitin hjá körlunum eru degi síðar. Úrslitaleikirnir eru svo laugardaginn 11. febrúar. Allir þessir leikir fara fram í Laugardalshöll.

Gunnhildur Gunnarsdóttir og stöllur í Snæfelli eru ríkjandi bikarmeistarar, sem …
Gunnhildur Gunnarsdóttir og stöllur í Snæfelli eru ríkjandi bikarmeistarar, sem og Íslandsmeistarar. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert