Stórleikur Harden en Miami fagnaði

Dirk Nowitzki til varnar gegn Rajon Rondo í leik Dallas …
Dirk Nowitzki til varnar gegn Rajon Rondo í leik Dallas Mavericks og Chicago Bulls í gær, þar sem Dallas vann með einu stigi. AFP

James Harden skoraði 40 stig, tók 12 fráköst og átti 10 stoðsendingar í NBA-deildinni í nótt, en var engu að síður í tapliði þegar Houston Rockets sótti Miami Heat heim.

Miami vann leikinn með sex stiga mun, 109:103. Staðan var jöfn fyrir lokafjórðunginn en heimamenn voru sterkari á lokasprettinum. Slóveninn Goran Dragic átti góðan leik fyrir Miami en hann skoraði 21 stig og átti átta stoðsendingar.

Miami er í næstneðsta sæti austurdeildarinnar en Houston er í 3. sæti vesturdeildarinnar.

Úrslit næturinnar:
Brooklyn - Toronto 109:119
Miami - Houston 109:103
Chicago - Dallas 98:99
San Antonio - Minnesota 122:114
LA Lakers - Denver 121:127

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert