Valur hafði betur gegn Hetti í 1. deild karla í körfubolta á Egilsstöðum í kvöld, 76:68. Sigurinn var ansi mikilvægur enda um toppslag að ræða.
Höttur vann 1. leikhlutann með fimm stiga mun en Valur vann síðustu þrjá leikhlutana og þar með leikinn.
Fyrir leikinn var Höttur með átta stiga forystu á Val, sem átti tvo leiki til góða. Nú munar aðeins sex stigum á liðunum og getur Valur minnkað forskot þeirra á toppi deildarinnar í tvö stig. Höttur stendur áfram best að vígi með að fara beint upp í úrvalsdeildina. Þangað fer meistaralið 1. deildar en næstu fjögur lið fara í umspil um eitt sæti.
Valur er enn í 3. sæti deildarinnar, tveim stigum á eftir Fjölni. Valur á hins vegar líka tvo leiki inni á Fjölni og geta liðin því átt sætaskipti á næstu vikum. Höttur er með 34 stig, Fjölnir 30 og Valur 28 stig.
Aaron Moss var yfirburðarmaður hjá Hetti og skoraði hann 32 stig. Urald King skoraði 16 fyrir Val og þeir Austin Magnus Bracey og Sigurður Dagur Sturluson voru með 15 stig hvor.