Flottur leikur Söndru í sigri

Sandra Lind Þrastardóttir í landsleik.
Sandra Lind Þrastardóttir í landsleik. mbl.is/Styrmir Kári

Sandra Lind Þrastardóttir átti góðan leik fyrir Hørsholm 79ers í dönsku deildinni í körfubolta í dag. Hørsholm hafði þá betur gegn BK Amager, 68:60. 

Sandra skoraði 13 stig og tók auk þess fimm fráköst á þeim tæplega 30 mínútum sem hún spilaði. Hørsholm er í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Virum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert