Snæfell vann toppslaginn

Aaryn Ellenberg-Wiley var stigahæst hjá Snæfelli.
Aaryn Ellenberg-Wiley var stigahæst hjá Snæfelli. mbl.is/Árni Sæberg

Snæfell vann ansi góðan 71:61 sigur á Skallagrími í Dominos-deild kvenna í körfubolta í dag. Fyrir vikið fór Snæfell upp fyrir Skallagrím og upp í toppsætið.

Aaryn Ellenberg skoraði 28 stig fyrir Snæfell á meðan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var með 19 fyrir Skallagrím. 

Keflavík hafði betur gegn Stjörnunni 74:68 og eru Keflavík og Skallagrímur því jöfn að stigum, tveim stigum á eftir Snæfelli. 

Haukar unnu svo Grindavík 56:52 í Grindavík í uppgjöri neðstu liðanna og þar með virðist fátt geta forðað Grindvíkingum frá falli. Engin tölfræði barst frá þeim leik.

Snæfell er með 34 stig, Keflavík 32, Skallagrímur 32, Stjarnan 24, Valur 18, Njarðvík 18, Haukar 12 og Grindavík 6 stig.

Keflavík - Stjarnan 74:68

TM höllin, Úrvalsdeild kvenna, 18. febrúar 2017.

Gangur leiksins:: 8:3, 13:15, 17:19, 22:21, 22:24, 24:29, 26:35, 37:37, 41:44, 47:49, 49:56, 52:58, 54:66, 58:68, 65:, 74:.

Keflavík: Ariana Moorer 19/6 fráköst/7 stoðsendingar, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 18/5 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 14, Thelma Dís Ágústsdóttir 13/9 fráköst, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 8/4 fráköst, Svanhvít Ósk Snorradóttir 2.

Fráköst: 18 í vörn, 10 í sókn.

Stjarnan: Ragna Margrét Brynjarsdóttir 28/12 fráköst, Danielle Victoria Rodriguez 23/12 fráköst/6 stoðsendingar, Bríet Sif Hinriksdóttir 7/6 fráköst, Shanna Dacanay 6, María Lind Sigurðardóttir 4/5 fráköst.

Fráköst: 20 í vörn, 16 í sókn.

Áhorfendur: 200

Skallagrímur - Snæfell 61:71

Borgarnes, Úrvalsdeild kvenna, 18. febrúar 2017.

Gangur leiksins:: 4:5, 11:11, 13:13, 18:17, 24:19, 28:23, 31:31, 32:36, 34:40, 36:43, 44:46, 46:48, 51:50, 55:52, 59:59, 61:71.

Skallagrímur: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 19/10 fráköst, Tavelyn Tillman 15/8 fráköst/5 stoðsendingar, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 11/10 fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 8/5 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 5/8 fráköst, Fanney Lind Thomas 3/4 fráköst.

Fráköst: 27 í vörn, 18 í sókn.

Snæfell: Aaryn Ellenberg 28/10 fráköst/7 stoðsendingar, Berglind Gunnarsdóttir 20, Bryndís Guðmundsdóttir 10/11 fráköst/5 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 6, Alda Leif Jónsdóttir 3, Sara Diljá Sigurðardóttir 2, María Björnsdóttir 2.

Fráköst: 21 í vörn, 10 í sókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert