Elvar Már átti stórleik

Elvar Már Friðriksson.
Elvar Már Friðriksson. Ljósmynd/liuathletics.com

Elvar Már Friðriksson fór mikinn með liði Barry Bucks í bandarísku háskóladeildinni í körfuknattleik.

Elvar Már og félagar höfðu betur gegn Embry Riddle, 113:102, í síðasta leiknum í deildarkeppninni. Elvar var allt í öllu hjá Barry Bucks en hann skoraði 37 stig, þar af átta þriggja stiga körfur, tók 5 fráköst og gaf 9 stoðsendingar en Elvar hefur átt frábært tímabil með liði sínu.

Fram undan er úrslitakeppnin og í fyrstu umferðinni mætir Barry Bucks liði Flórída Tech.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert