Gunnar inn fyrir Daða hjá Keflavík

Gunnar Einarsson.
Gunnar Einarsson. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Daði Lár Jónsson mun ekki leika með Keflavík í kvöld í fjórða einvígisleik liðsins við Tindastól í átta liða úrslitunum um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik.

Daði meiddist í þriðja leiknum á Sauðárkróki á miðvikudagskvöld þegar Stólarnir minnkuðu muninn í einvíginu í 2:1. Daði meiddist á fæti eftir að hafa lent undir Antonio Hester, leikmanni Tindastóls.

Daði sagði við karfan.is að hann væri ekki brotinn og þó hann vissi ekki hvenær hann gæti snúið aftur væri það í það minnsta ekki í kvöld.

Karfan.is greinir hins vegar einnig frá því að gamli refurinn Gunnar Einarsson yrði með Keflvíkingum, en hann var aðstoðarþjálfari hjá liðinu fyrri hluta vetrar áður en Friðrik Ingi Rúnarsson tók við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert