Stelpurnar fá eins bikar og strákarnir

Snæfell lyftir gamla Íslandsmeistarabikarnum síðasta vor.
Snæfell lyftir gamla Íslandsmeistarabikarnum síðasta vor. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Körfuknattleikssamband Íslands kynnti í dag nýjan bikar sem Íslandsmeistarar kvenna fá afhentan í vor og mun leysa þann gamla af hólmi.

Nýi bikarinn er gerður að fyrirmynd Íslandsmeistarabikars karla, sem hefur verið afhentur frá árinu 1987. Bikarinn er handsmíðaður í New York af sama fyrirtæki og framleiðir verðlaunagripi fyrir NBA-deildina.

„KKÍ mun afhenda Íslandsmeisturum í efstu deild kvenna bikarinn um ókomin ár og verður vonandi bikarinn álíka „icon“ og bikar karla sem er að okkar mati sá fallegasti sem afhentur er í íslenskum íþróttagreinum,” segir í frétt KKÍ.

Hér að neðan má sjá nýja bikarinn og efst í fréttinni má sjá ríkjandi meistara Snæfells lyfta þeim eldri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert