Ragna reiknar með að spila

Ragna Margrét Brynjarsdóttir.
Ragna Margrét Brynjarsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Ragna Margrét Brynjarsdóttir, landsliðskona og lykilmaður í liði Stjörnunnar, missti af síðustu tveimur leikjum liðsins í Dominos-deildinni í körfubolta vegna liðþófameiðsla í hné.

Í samtali við Morgunblaðið kvaðst hún hins vegar reikna með því að spila í úrslitakeppninni strax frá fyrsta leik undanúrslitaeinvígisins við Snæfell næstkomandi þriðjudag.

Ragna Margrét er atkvæðamesti Íslendingurinn í liði Stjörnunnar og skoraði í deildinni í vetur 13,9 stig að meðaltali í leik og tók 9,3 fráköst.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert