James Harden fór á kostum þegar Houston Rockets náði forystu í einvígi sínu við Oklahoma City Thunder í átta liða úrslitum NBA-deiildarinnar í körfubolta með öruggum 118:87-sigri sínum í leik liðanna í nótt.
Harden skoraði 37 stig í leik liðanna í nótt, en Harden gaf þar að auka níu stoðsendingar á samherja sína og tók einnig sjö fráköst. Russell Westbrook var atkvæðamestur hjá Oklahoma City Thunder með 22, en hann tók 11 fráköst og gaf sjö stoðsendingar.