Leik Snæfells og Keflavíkur frestað

Ariana Moorer, Aaryn Ellenberg-Wiley og Thelma Dís Ágústsdóttir.
Ariana Moorer, Aaryn Ellenberg-Wiley og Thelma Dís Ágústsdóttir. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Ákveðið hefur verið að fresta leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum Dominos-deildar kvenna í körfubolta sem átti að fara fram í Stykkishólmi í kvöld vegna slæms veðurs.

Leikurinn hefur verið færður til morguns, þriðjudaginn 18. apríl, og verður spilaður klukkan 20.00.

Leikur KR og Grindavíkur í úrslitum Dominos-deildar karla í körfubolta verður þar af leiðandi flýtt og hefst hann klukkan 18.15 í DHL-höllinni í Vesturbænum.

Aðrir leikdagar haldast óbreytt í báðum úrslitaviðureignunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert