Stjarnan heldur tryggð við Hrafn

Hrafn Kristjánsson.
Hrafn Kristjánsson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Stjórn körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar ætlar að halda tryggð við Hrafn Kristjánsson, þjálfara karlaliðs félagsins, og verður hann áfram með liðið á næstu leiktíð.

Þetta fullyrðir karfan.is í kvöld. Hrafn er kominn í sumarfrí með Stjörnunni eftir 3:0-tap fyrir Grindavík í undanúrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn, en kröfurnar í Garðabænum voru miklar fyrir tímabilið. Stjarnan hafnaði í 2. sæti Dominos-deildarinnar og vann ÍR í einvígi 8-liða úrslita.

Hrafn var að ljúka sínu þriðja tímabili með Stjörnuna, en hann gerði liðið að bikarmeisturum á fyrsta ári sínu. Síðustu tvö ár hefur liðið svo hafnað í 2. sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert