Danero Thomas áfram hjá ÍR

Danero Thomas.
Danero Thomas. mbl.is/Árni Sæberg

Danero Thomas hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild ÍR og mun leika áfram með liðinu á næsta tímabili.

Danero gekk til liðs við ÍR í janúar eftir að hafa nokkuð óvænt yfirgefið Þór Akureyri með stuttum fyrirvara. Hann lék 11 leiki með ÍR og skoraði í þeim 15 stig, tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar að meðaltali.

Bakvörður­inn hef­ur leikið hér á landi síðan árið 2013 er hann gekk í raðir KR. Hann hef­ur einnig spilað með Val, Hamri og Fjölni auk Þórs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert