„Ég skaut af sjálfsöryggi“

Philip Alawoya var hetja KR gegn Grindavík í kvöld þegar hann tryggði liðinu dramatískan sigur, 89:88, í öðrum einvígisleik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik. KR er nú einum sigri frá titlinum.

Alawoya sagði að Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, sagði leikmönnum að skjóta ef þeir væru í stöðu til þess og að skjóta með sjálfsöryggi. Hann sagðist hafa gert það í skotinu sem að lokum réði úrslitum í leiknum.  

Alawoya sagði gaman að spila í Grindavík en vildi helst ekki þurfa að koma aftur og ætlar að lyfta bikar í næsta leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert