„Þetta er sárt“

Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, var enn að jafna sig þegar mbl.is tók hann tali eftir dramatískt tap fyrir KR, 89:88, í öðrum einvígisleik liðanna í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik.

Súr í bragði sagði Ólafur að tapið hefði verið erfitt en að nú yrðu Grindvíkingar að hysja upp um sig og vinna rest til að eiga möguleika á Íslandsmeistaratitlinum. 

Ólafur sagði lið sitt hafa hætt að gera það sem virkaði svo vel fyrir þá allt kvöldið á lokakaflanum og það hefði kostað þá sigurinn að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert