Átján stig Sigurðar dugðu ekki

Sigurður Gunnar Þorsteinsson
Sigurður Gunnar Þorsteinsson mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Sigurður Gunnar Þorsteinsson var stigahæstur í liði AEL frá Larissa þegar það sótti heim Aiolos Astakou í grísku B-deildinni í körfuknattleik í dag.

Sigurður skoraði 18 stig í leiknum en það dugði skammt því Aiolos sigraði örugglega, 96:77. 

Fyrir lokaumferðina er AEL í 10. sæti deildarinnar og á ekki lengur möguleika á að komast í umspil um sæti í efstu deild. Liðið þarf hinsvegar að vinna lokaleikinn til að gulltryggja sæti  sitt í deildinni því annars bíður umspil í neðri hlutanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert