Tryggvi gerir þriggja ára samning við Þór

Tryggvi Snær Hlinason
Tryggvi Snær Hlinason mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Körfuboltamaðurinn Tryggvi Snær Hlinason hefur gert þriggja ára samning við Þór Akureyri. Tryggvi var einn besti leikmaður Þórs á síðasta tímabili, er liðið hafnaði í 8. sæti úrvalsdeildarinnar og féll úr leik gegn Íslandsmeisturum KR í átta liða úrslitum.

Tryggvi stefnir enn að því að leika erlendis á næsta tímabili, en nú hefur Þór tryggt sér þjónustu hans, fari svo að hann spili áfram á Íslandi á næstu leiktíð. 

Miðherjinn hefur verið viðloðandi A-landsliðið að undanförnu og er hann á meðal efnilegustu leikmanna landsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert