Keflavík fær tvo leikmenn

Ragnar Örn og Sigurþór Ingi með Friðriki Inga Rúnarssyni, þjálfara …
Ragnar Örn og Sigurþór Ingi með Friðriki Inga Rúnarssyni, þjálfara liðsins. Ljósmynd/Keflavík

Körfuknattleiksmennirnir Ragnar Örn Bragason og Sigurþór Ingi Sigurþórsson eru búnir að skrifa undir samning við Keflavík og munu þeir spila með liðinu á næstu leiktíð. Keflavík hefur þar með samið við þrjá leikmenn á skömmum tíma, en Þröstur Leó Jóhansson gekk í raðir Keflavíkur á dögunum. 

Ragnar Örn, sem er uppalinn hjá ÍR, hefur undanfarin ár spilað með Þór Þorlákshöfn og Sigurþór Ingi hefur leikið með Bærum í Noregi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert