Skallagrímur lætur Rodriguez fara

Manuel Angel Rodriguez.
Manuel Angel Rodriguez. Ljósmynd/Stella Andrea

Spænska þjálfaranum Manuel Rodriguez hefur verið sagt upp stöfum hjá kvennaliði Skallagríms í körfubolta. Rodriguez kom Skallagrímskonum upp í efstu deild fyrir síðustu leiktíð með því að vinna 1. deildina. Liðið hafnaði svo í 3. sæti úrvalsdeildarinnar í ár, en féll úr leik í undanúrslitum í úrslitakeppninni eftir einvígi við Keflavík. 

Skallagrímur komst einnig í bikarúrslit, en þar hafði Keflavík einnig betur. Rodriguez greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert