Höttur styrkir sig fyrir átökin

Bergþór Ægir Ríkharðsson handsalar samninginn.
Bergþór Ægir Ríkharðsson handsalar samninginn. Ljósmynd/Höttur

Höttur frá Egilsstöðum, nýliði í efstu deild karla í körfuknattleik á næsta tímabili, hefur samið við Bergþór Ægi Ríkharðsson um að leika með liðinu í Dominos-deildinni næsta vetur.

Bergþór Ægir kemur frá Fjölni, þar sem hann spilaði rúmar 22 mínútur að meðaltali í leik og skoraði þá um 7 stig auk þess að taka 4 fráköst að meðaltali.

Bergþór fylgir í fótspor Adams Eiðs Ásgeirssonar sem einnig samdi við Hött fyrr í sumar. Þá hefur Höttur samið við alla þá leikmenn sem fylgdu liðinu upp úr 1. deildinni í fyrra, fyrir utan það að nýr bandarískur leikmaður mun koma til liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert