Lakers fær liðsstyrk frá Detroit

Kentavious Caldwell-Pope í leik með Detroit.
Kentavious Caldwell-Pope í leik með Detroit. AFP

LA Lakers hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta. Kentavious Caldwell-Pope hefur skrifað undir eins árs samning við félagið og mun hann fá 18 milljónir dollara á árinu. Caldwell-Pope lék síðast með Detroit Pistons. 

Caldwell-Pope skoraði 13,8 stig og tók 3,3 fráköst að meðaltali fyrir Detroit Pistons á síðasta ári. Félagið ákvað hins vegar að framlengja samning leikmannsins ekki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert