Manuel Rodriguez gerir samning við FSu

Manuel Rodriguez
Manuel Rodriguez mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Spánverjinn Manuel Rodriguez hefur skrifað undir samning við FSu og verður hann aðstoðarþjálfari karlaliðsins í körfubolta sem og þjálfari yngri flokka félagsins. FSu hafnaði í sjöunda sæti í 1. deild á síðustu leiktíð eftir að hafa fallið úr efstu deild árið á undan. 

Manuel þjálfaði kvennalið Skallagríms í tvö ár. Á fyrra árinu kom hann liðinu upp um deild og á seinna árinu hafnaði liðið í þriðja sæti Dominos-deildarinnar ásamt því að komast í bikarúrslit og undanúrslit í úrslitakeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert