Meiðsli í nára að angra Jón Arnór

Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óvíst er hversu mikið Jón Arnór Stefánsson getur beitt sér á næstunni í undirbúningi körfuboltalandsliðsins fyrir lokakeppni EM í Finnlandi. Nárameiðsli frá því í vor tóku sig upp og ljóst að Jón mun fara varlega næstu dagana í það minnsta.

Aðstoðarþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson staðfesti þetta en sagðist ekki reikna með því að meiðslin væru alvarleg þótt nárameiðsli gætu reynst erfið. Landsliðið fer í næstu viku til Rússlands og leikur þar vináttuleiki og mun Jón fara með. kris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert