Naumt tap fyrir Lúxemborg í fyrsta leik

U16 ára landsliðið
U16 ára landsliðið Ljósmynd/KKÍ

Íslenska stúlknalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri mátti þola 56:49-tap í fyrsta leik sínum í B-deild Evrópumótsins sem fram fer í Skopje í Makedóníu. 

Ásta Grímsdóttir skoraði 19 stig fyrir íslenska liðið og var stigahæst. Ólöf Ólafsdóttir skoraði níu stig og Anna Svansdóttir skoraði átta stig. 

Íslenska liðið leikur gegn því gríska í öðrum leik sínum á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert