Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði öðru sinni gegn Ungverjum í vináttuleik í körfubolta ytra. Lokatölu voru 85:67, en íslenska liðið var með 39:37 forystu í hálfleik.
Martin Hermannsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 17 stig, Haukur Helgi Pálsson skoraði 12 stig og Hörður Axel Vilhjálmsson gerði tíu stig.
Íslenska liðið mætir Litháen á miðvikudaginn kemur í síðasta leik sínum í undirbúningi fyrir EM í Finnlandi sem hefst með leik gegn Grikklandi 31. ágúst næstkomandi.