Nýr leikmaður til Njarðvíkinga

Erika Williams.
Erika Williams. Ljósmynd/umfn.is

Njarðvík hefur samið við bakvörðinn/framherjann Eriku Williams fyrir leiktíðina sem framundan er í Dominos-deild kvenna í körfuknattleik en þetta kemur fram á vef félagsins.

Williams útskrifaðist frá CSU Bakersfield háskólanum þar sem hún var með 12,3 stig og 4,8 fráköst að meðaltali í leik en samningur hennar við Njarðvík er fyrsti atvinnumannasamningur leikmannsins.

Hallgrímur Brynjólfsson þjálfari Njarðvíkurliðsins er ánægður með að fá Williams, sem væntanleg er til landsins á næstu dögum.

„Þetta er leikmaður sem getur hlaupið í nokkrar stöður innan liðsins og mikill íþróttamaður svo við bindum vonir við að hún geti hjálpað okkar unga liði að vaxa og dafna enn frekar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert