Kristófer byrjaði á stórleik

Kristófer Acox skorar gegn Frökkum á EM í Finnlandi.
Kristófer Acox skorar gegn Frökkum á EM í Finnlandi. mbl.is/Skúli B. Sigurðsson

Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfuknattleik, var í aðalhutverki strax í fyrsta leiknum með liði sínu á Filippseyjum, Star Hotshots, en hann lék í fyrsta skipti með liðinu í dag.

Star Hotshots beið þá lægri hlut, 99:104, gegn TNTKaTropa á heimavelli. Kristófer var stigahæstur í liðinu með 18 stig og tók langflest fráköst, eða 18 talsins, auk þess að eiga þrjár stoðsendingar. Hann spilaði mest allra í liðinu, eða í 41 mínútu af 48.

Star Hotshots er áfram í sjöunda sæti af tólf liðum þegar tveimur leikjum er ólokið í deildinni en átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert