Landsliðsmennirnir Martin Hermannsson og Haukur Helgi Pálsson voru báðir í tapliðum í frönsku A-deildinni í körfuknattleik í kvöld en þeir léku þar með sínum nýju liðum í fyrstu umferð deildarinnar.
Martin og félagar hans í Chalons-Reims töpuðu fyrir Dijon, 86:61. Martin skoraði 10 stig en hann spilaði rúmlega 31 mínútu í leiknum.
Haukur Helgi skoraði 4 stig fyrir Cholet sem tapaði fyrir Le Portel, 73:62. Haukur spilaði í rúmar 14 mínútur í leiknum.