Keflavík hætt við að fá Young

Kevin Young
Kevin Young Ljósmynd/Twitter

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur mun ekki gera samning við Kevin Young, leikmann frá Púertó Ríkó, eins og stóð til. Vegna reglna um erlenda leikmenn fékk Keflavík frest til að ákveða hvort samningur yrði gerður við leikmanninn eður ei. Karfan.is greinir frá þessu í dag. 

Ekki hefur verið samið við annan erlendan leikmann í staðinn en Keflavík hefur leik í Dominos-deildinni 5. október næstkomandi þegar Valur kemur í heimsókn. Að sögn formanns deildarinnar var Young ekki sá leikmaður sem Keflavík leitaði að. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert