Þrír úrvalsdeildarslagir í bikarnum

KR-ingar eiga titil að verja.
KR-ingar eiga titil að verja. mbl.is/Golli

Í dag var dregið í 16-liða úrslit bikarkeppni karla í körfuknattleik, en þar verða þrjár rimmur af átta á milli liða í Dominos-deildinni. Leikið verður 4.-6. nóvember.

Njarðvík mætir þá Grindavík í grannaslag, Þór Akureyri fær nýliða Hattar í heimsókn og Valur mætir Tindastóli. Af öðrum leikjum má nefna að ríkjandi meistarar KR fá Vestra í heimsókn, en dráttinn má sjá hér að neðan.

Njarðvík – Grindavík
ÍR – Snæfell
Þór Ak. – Höttur
KR – Vestri
Njarðvík b/Skallagrímur – Haukar
Keflavík – Fjölnir
Valur – Tindastóll
KR b - Breiðablik

Einnig var dregið í kvennaflokki, en þar voru 13 lið skráð til leiks og sitja þrjú lið hjá í fyrstu umferð. ÍR, Valur og KR sitja hjá en dráttinn má sjá hér að neðan.

Þór Ak. – Snæfell
Fjölnir – Skallagrímur
Breiðablik – Haukar
Grindavík – Keflavík
Njarðvík – Stjarnan

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert