Segja aðgerðir ÍR skaðlegar fyrir börnin og körfuboltann

Helena Sverrisdóttir er ein þeirra þjálfara sem skrifa undir yfirlýsinguna.
Helena Sverrisdóttir er ein þeirra þjálfara sem skrifa undir yfirlýsinguna. mbl.is/Eggert

Fjöldi núverandi og fyrrverandi landsliðsþjálfara í körfubolta hefur sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna umræðunnar í kjölfar þess að 10 ára körfuboltastúlkur úr ÍR, foreldrar þeirra og þjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson mótmæltu þeirri ákvörðun KKÍ að leyfa stúlkunum ekki að taka þátt í minniboltamóti drengja.

ÍR-ingar munu hafa sent inn skriflega umsókn til KKÍ um að stúlkurnar fengju undanþágu til að leika gegn 10 ára strákum á Íslandsmótinu, með skömmum fyrirvara, en því var hafnað með þeim rökum að reglugerðarbreytingar þyrfti til að leyfa slíkt.

Samkvæmt frétt Körfunnar.is mótmæltu stúlkurnar, foreldrar og þjálfarar ÍR ákvörðun KKÍ harðlega í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ um síðustu helgi, þar sem minniboltamót 10 ára drengja fór fram.

Yfirlýsingu landsliðsþjálfaranna má sjá hér að neðan:

Í kjölfar umræðu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum um þátttöku 10 ára stúlkna í minniboltamóti KKÍ vilja undirritaðir körfuknattleiksþjálfarar koma eftirfarandi á framfæri.

Við fordæmum þá atburðarás sem þjálfari körfuknattleiksdeildar ÍR hrinti af stað um liðna helgi á fjölliðamóti KKÍ í Garðabæ. Það var sláandi að sjá að ungum iðkendum var beitt til að gagnrýna körfuknattleikshreyfinguna. Það hefur verið dapurlegt að heyra hvernig umræðan hefur verið afvegaleidd og markvisst uppbyggingarstarf KKÍ og fjölmargra félaga, bæði fyrir stúlkur og drengi, er gagnrýnt með ómaklegum hætti. Það er mat okkar að þær ásakanir sem fram hafa komið af hendi fulltrúa ÍR vinni gegn útbreiðslu körfuknattleiks. Við teljum að aðgerðir ÍR séu hvorki körfuknattleik né jafnrétti til framdráttar.

Við fögnum því að körfuknattleiksdeild ÍR hafi nú stigið fram, eflt kvennadeild félagsins og byrjað aftur með meistaraflokk kvenna, eftir rúmlega 10 ára hlé. Breiðholtið er gott og fjölmennt hverfi og börn þar eiga rétt á að stunda körfuknattleik til jafns við aðrar íþróttir. Á sama tíma höfum við verulegar efasemdir um að þeirra fyrsta skref nú eigi að vera að gagnrýna og úthrópa það starf sem KKÍ og félög hafa unnið á síðustu árum og áratugum. Við hvetjum forsvarsmenn ÍR að taka þátt í umræðu með okkur og KKÍ um uppbyggingu körfuknattleiks og markmiði með þátttöku yngri iðkenda og afreksstarfi þeirra eldri.

Við hörmum að svona sé komið og teljum skaðlegt að mál af þessum toga sé rakið í fjölmiðlum, öllum til ógagns, ekki síst þeim börnum sem eiga í hlut. Við hvetjum körfuknattleiksdeild ÍR til að beina málum í réttan farveg og draga til baka ummæli sem fallið hafa.  Börn eiga rétt að fá að vera börn og standa fyrir utan harkalegar deilur einstaklinga við íþróttahreyfinguna. Við veltum fyrir okkur, fyrir hvern eru aðgerðir eða mótmæli á borð við atburði síðustu helgar? Hver hefur hag af slíkri uppákomu?

Rétt er að benda á að oftsinnis í öllum íþróttagreinum hafa komið upp hópar, stúlkna jafnt sem drengja, sem hafa haft yfirburði, tímabundið eða til lengri tíma, yfir jafnaldra sína. Í öllum tilvikum hafa verið fundnar leiðir til að allir fái verkefni við hæfi, eftir getu, þroska (andlegum og líkamlegum) og áhuga. Sú leið sem körfuknattleiksdeild ÍR valdi er einfaldlega röng og er skaðleg fyrir leikinn og börnin að okkar mati.

Við óskum ÍR góðs gengis í uppbyggingu á kvennakörfubolta í Breiðholtinu.

Undirrituð hafa öll margra ára eða áratuga reynslu af körfuboltaþjálfun, hafa þjálfað stúlkur sem drengi, meistaraflokk beggja kynja og landslið Íslands. Allir þjálfarar eru sammála um mikilvægi jafnréttis kynjanna í íþróttum. Halda þurfi áfram þarf að vinna markvist að því að jafna hlut kynjanna í íþróttum. Við öll sem ritum nafn okkar hér hafa hlotið menntun og þjálfun til að kenna börnum og fullorðnum og leiðbeina þeim í körfuknattleik, auk þess sem sum hafa menntað sig í uppeldisfræðum.

Virðingarfyllst,

Núverandi og fyrrverandi landsliðs þjálfarar

Ágúst S. Björgvinsson

Árni Þór Hilmarsson

Benedikt Guðmundsson

Bylgja Sverrisdóttir

Einar Árni Jóhannsson

Finnur Jónsson

Finnur Freyr Stefánsson

Friðrik Ingi Rúnarsson

Helena Sverrisdóttir

Hildur Sigurðardóttir

Hjalti Þór Vilhjálmsson

Ingi Þór Steinþórsson

Ingvar Þór Guðjónsson

Ívar Ásgrímsson

Kjartan Atli Kjartansson

Lárus Jónsson

Margrét Sturlaugsdóttir

Sigurður Ingimundarson

Snorri Örn Arnaldsson

Sverrir Þór Sverrisson

Sævaldur Bjarnason

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert