Áhyggjuefni að mæta svona til leiks

Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkinga var gríðarlega svekktur með sína liðsmenn eftir að hafa tapað illa gegn KR, 87:68, í átta liða úrslitum Maltbikarsins í körfubolta í kvöld.

Daníel sagði það áhyggjuefni að liðið mæti til leiks í slíka stórleiki. Daníel sagðist stundum ekki átta sig á körfuboltanum því liðið hafi verið að spila feykilega vel í síðasta leik og vísaði þar í sigur sinna manna gegn Tindastól. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert