Boston á sigurbraut á ný

Al Horford og Semi Ojeleye fagna með Boston Celtics.
Al Horford og Semi Ojeleye fagna með Boston Celtics. AFP

Boston Celtics komst á ný á sigurbraut í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt þegar liðið heimsótti Detroit Pistons og vann tíu stiga sigur, 91:81.

Boston hafði áður tapað fyrir San Antonio Spurs, en liðið hefur verið í sérflokki í Austurdeildinni á tímabilinu og unnið 23 leiki en tapað aðeins fimm. Næsta lið á eftir er Toronto Raptors með 17 sigra.

Victor Oladipo skoraði 47 stig, fleiri en nokkru sinni, þegar Indiana Pacers vann Denver Nuggets 126:116, en úrslit næturinnar má sjá hér að neðan.

Sacramento Kings – Toronto Raptors 87:102
Detroit Pistons – Boston Celtics 81:91
Indiana Pacers – Denver Nuggets 126:116
Minnesota Timberwolves – Dallas Mavericks 97:92
New Orleans Pelicans – Philadelphia 76ers 131:124
New York Knicks – Alanta Hawks 111:107

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert