KR af öryggi í undanúrslitin

Ragnar Águst Nathanaelsson sækir að körfu KR-inga í kvöld. Darri …
Ragnar Águst Nathanaelsson sækir að körfu KR-inga í kvöld. Darri Hilmarsson verst. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

KR getur enn varið bikarmeistaratitil sinn í körfubolta karla eftir 85:68-sigur á Njarðvík á útivelli í átta liða úrslitum Maltbikarsins í kvöld. KR var yfir allan leikinn og var sigurinn aldrei í hættu. KR vann fyrsta leikhlutann 24:11 og náði Njarðvík aldrei að jafna eftir það. 

Björn Kristinsson og Kristófer Acoz skoruðu 15 stig hvor fyrir KR og Sigurður Þorsteinsson bætti við 13 stigum af bekknum. Hjá Njarðvík var Maciek Baginski með 20 stig og þeir Logi Gunnarsson og Terrell Vinson voru með 15 stig hvor. 

Njarðvík 68:87 KR opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert