Sandra með tvöfalda tvennu í sigri

Sandra Lind Þrastardóttir
Sandra Lind Þrastardóttir Ljósmynd/Styrmir Kári

Hörsholm valtaði yfir Værlöse er liðin mættust í efstu deild Danmerkur í körfubolta kvenna í dag. Lokatölur urðu 61:28. Sandra Lind Þrastardóttir átti mjög góðan leik fyrir Hörsholm því hún skoraði 12 stig, tók 12 fráköst og gaf eina stoðsendingu. 

Sandra hefur skorað 4,7 stig og tekið 4,2 fráköst að meðaltali í deildinni til þessa og var leikurinn í kvöld einn af allra bestu leikjum hennar í vetur. 

Hörsholm hefur unnið alla ellefu leiki sína til þessa og er með mikla yfirburði í deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert