Sandra Lind komin í bikarúrslit

Sandra Lind Þrastardóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta.
Sandra Lind Þrastardóttir á æfingu með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Sandra Lind Þrastardóttir og stöllur hennar hjá Hørsholm komust örugglega í úrslit í dönsku bikarkeppninni í körfubolta kvenna með 75:42-sigri sínum gegn Stevnsgade í undanúrslitum keppninnar í dag.

Sandra Lind lét vel til sín taka í frákastabaráttunni, en hún tók átta fráköst í leiknum. Sandra Lind skoraði auk þess tvö stig og gaf tvær stoðsendingar.

Hørsholm sem trónir á toppi dönsku efstu deildarinnar í körfubolta kvenna á því möguleika á að vinna þrefalt á þessu keppnistímabili.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert