Sýndum að við erum enn þá meistarar

Björn Kristjánsson tekur víti í leiknum í kvöld.
Björn Kristjánsson tekur víti í leiknum í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Mér leið bæði vel og illa. Maður veit þeir eru góðir í þessu en við þurftum bara að halda haus. Við gerðum ekki vel og létum ýta okkur úr okkar leik,“ sagði Björn Kristjánsson, leikmaður KR, eftir 93:86-sigur á Tindastóli í Dominos-deildinni í körfubolta í kvöld, aðspurður hvernig honum leið undir lok leiksins er Tindastóll minnkaði muninn í þrjú stig undir lokin. 

KR lék hins vegar vel í leiknum og er þetta líklegast besta frammistaða liðsins til þessa á leiktíðinni. 

„Frammistaðan var mjög góð og við erum að verða betri með hverjum leiknum. Ég er ánægður og við höldum áfram. Þetta er búið að vera svona í nokkur ár, við erum aldrei taldir sterkastir í byrjun. Það eru enn þá meiri læti yfir öðrum liðum en við sýndum í dag að við erum enn þá meistarar.“

Björn var sérstaklega ánægður að vinna Tindastól, sem fór illa með KR í Meistarakeppni KKÍ í byrjun leiktíðar. Hann var svo ánægður að hafa betur gegn Brynjari Þór Björnssyni, fyrrverandi KR-ingi. 

„Það var geggjað, við þurftum að hefna fyrir meistara meistaranna þegar þeir rassskelltu okkur, það var gott að vinna Brilla í toppslag,“ sagði Björn Kristjánsson. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert