Fyrirliði skoska kvennalandsliðsins til Vals

Julie Stewart hefur samið við kvennaliðs Vals í knattspyrnu en hún bar áður eftirnafnið Fleeting. Julie Stewart er fyrirliði skoska kvennalandsliðsins og hefur hún leikið með Arsenal í ensku kvennadeildinni. Hún er hávaxinn framherji og hefur hún skorað 96 mörk í 86 leikjum en fyrsta landsleikinn lék hún 15 ára gömul. Hún mun leika sinn fyrsta leik með Val í kvöld í Landsbankadeild kvenna þegar liðið leikur gegn Fylki á Valbjarnarvelli.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is