Erna B. Sigurðardóttir Breiðabliki skoraði fimm mörk gegn FH í kvöld.
mbl.is
34 mörk voru skoruð í fjórum leikjum í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Vallstúlkur halda sínu striki og sigruðu Fylki 14:0 þar sem Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sjö mörk. Nýjasti liðsmaður Vals Julie Stewart skoraði þrennu í sínum fyrsta leik. Breiðablik sigraði FH 13:1 á útivelli þar sem Erna Björk Sigurðardóttir skoraði fimm sinnum og Sandra Sig Magnúsdóttir fjórum sinnum. Í Keflavík fór KR heim með öll stigin og sigraði 3:0 þar sem Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði tvívegis. Stjarnan fékk KA/Þór í heimsókn í Garðabæinn og sigraði 3:0 þar sem Helga Jóhannesdóttir, Björk og Soffía Gunnarsdætur skiptu með sér mörkunum. Valur trónir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga en Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks koma þar á eftir með tvö töp á bakinu.