Kvennalið Vals fær liðstyrk

Julie Stewart hefur samið við kvennalið Vals í knattspyrnu en hún bar áður eftirnafnið Fleeting.

Julie Stewart er fyrirliði skoska kvennalandsliðsins og hefur hún leikið með Arsenal í ensku kvennadeildinni. Hún er hávaxinn framherji og hefur skorað 96 mörk í 86 leikjum en fyrsta landsleikinn lék hún 15 ára gömul. Hún lék sinn fyrsta leik með Val í gærkvöldi í Landsbankadeild gegn Fylki á Valbjarnarvelli.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is