Íþróttir
|
Landsbankadeild kvenna
| Morgunblaðið
| 26.7.2006
| 5:30
| Uppfært
7:54
Margrét Lára með 100. markið
Margrét Lára Viðarsdóttir er marksækin. mbl.is/Golli
Fyrir keppnistímbilið hafði hún gert 71 mark í deildarleik og því var sjöunda mark hennar í gær 100. markið sem hún gerir í deildinni. Þessum árangri hefur hún náð í 64 leikjum. Hún lék 40 leiki með ÍBV áður en hún gekk til liðs við Val og gerði 48 mörk í þeim. Á fyrsta tímabili sínu með Val, í fyrra, lék hún 14 leiki og gerði 23 mörk. Vart þarf að taka fram að hún er markahæst í deildinni í ár með 29 mörk en næst kemur Nína Ósk Kristinsdóttir úr Keflavík með 18 og Hólmfríður Magnúsdóttir úr KR hefur gert 16 mörk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






