Valsstúlkur slógu KR út úr bikarkeppninni

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Valsliðsins, er komin með sínar stelpur í undanúrslit bikarkeppninnar.

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Valsliðsins, er komin með sínar stelpur í undanúrslit bikarkeppninnar. mbl.is/Þorvaldur

Valur sigraði KR 3:0 í átta liða úrslitum Visa bikarkeppnininni í knattspyrnu kvenna í Vesturbænum í kvöld. Fjölnir er einnig komið í undanúrslit eftir 2:0 sigur á HK/Víkingi á útivelli. Stjarnan fór örugglega áfram með 7:1 sigri á ÍR í Garðabænum. Síðasta sætið í undanúrslitum fær Breiðablik sem lagði Keflavík 2:0 á Kópavogsvelli.

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvívegis fyrir Val og Dóra María Lárusdóttir einu sinni. Fyrir Fjölni skoruðu þær Guðný Jónsdóttir og Kristrún Kristjánsdóttir. Björk Gunnarsdóttir skoraði þrennu fyrir Stjörnuna og þær Gunnhildur Jónsdóttir, Guðrún Finnsdóttir, Karítas Elvarsdóttir og Helga Jóhannesdóttir sitt markið hver. Fyrir ÍR svaraði Guðný Árnadóttir. Ólína G. Viðarsdóttir og Edda Garðarsdóttir sáu um mörkin fyrir Breiðablik.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is