Breiðablik stöðvaði sigurgöngu Vals

Breiðablik fagnar á góðri stund.

Breiðablik fagnar á góðri stund. mbl.is/ÞÖK

Kvennalið Vals tapaði sínum fyrsta leik á Íslandsmótinu í knattspyrnu í kvöld á Kópavogsvelli þar sem að Breiðablik hafði betur, 2:1. Edda Garðarsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins á 10. mínútu og Erna Björk Sigurðardóttir bætti við öðru marki á 27. mínútu. Skoski landsliðsfyrirliðinn Julie Fleeting skoraði mark Vals á 63. mínútu en liðið var með fullt hús stiga fyrir leikinn, 30 stig, en Valur hefur leikið 11 leiki en Breiðablik hefur leikið 12 leiki og er með 30 stig líkt og Valur. Markatala Vals er með eindæmum góð en liðið hefur skorað 78 mörk og fengið á sig 6. Breiðablik er með markatöluna 56:12, og er Valur því með hagstæðara markahlutfall, alls 28 mörk.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is