Íþróttir
|
Landsbankadeild kvenna
| mbl
| 8.8.2006
| 15:51
| Uppfært
18:17
Erna skoraði þrennu í stórsigri Breiðabliks
Breiðablik vann góðan sigur á portúgalska liðinu 1. desember,4:0, í undankeppni Evrópukeppni félagsliða, en leikið er í Austurríki. Erna B. Sigurðardóttir skoraði þrennu fyrir Blikastúlkur og varamaðurinn Elín Anna Steinarsdóttir skoraði eitt mark skömmu fyrir leikslok. Þetta var fyrsti leikur liðsins í riðlinum en það mætir austurríska liðinu SV Neulengbach á fimmtudaginn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






