Breiðablik með vænlega stöðu gegn Neulengbach

Greta Mjöll Samúelsdóttir í leik gegn KR fyrr í sumar.

Greta Mjöll Samúelsdóttir í leik gegn KR fyrr í sumar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Kvennalið Breiðabliks er með vænlega stöðu að loknum fyrri hálfleik gegn Neulengbach frá Austurríki í UEFA-keppninni í knattspyrnu. Greta Mjöll Samúelsdóttir og Erna B. Sigurðardóttir skoruðu í fyrri hálfleik og í upphafi síðari hálfleiks bættu leikmenn Breiðabliks við þriðja markinu. Staðan er því 3:0 og mikið er eftir af leiknum. Leikið er í riðlakeppni í 1. umferð Evrópukeppninnar en í gær lagði Breiðablik lið frá Portúgal, 1. desember, 4:0. Portúgalska liðið, 1. desember, sem er meistari í heimalandi sínu vann í dag stórsigur á Newtownabbey frá N-Írlandi, 7:1. Breiðablik leikur gegn Newtownabbey í lokaleiknum og eru því miklar líkur á því að Breiðablik vinni sigur í sínum riðli og komist þar með áfram í keppninni.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is