Kvennalið Breiðabliks komið í 2. umferð UEFA-keppninnar

Úr leik Breiðabliks og Vals fyrr í sumar.

Úr leik Breiðabliks og Vals fyrr í sumar. mbl.is/Jim Smart

Kvennalið Breiðabliks tryggði sér sæti í 2. umferð UEFA-keppninnar í knattspyrnu í dag með 3:0-sigri á Neulengbach frá Austurríki í 1. umferð riðlakeppninnar. Breiðablik hefur unnið báða leika sína fram til þessa í keppninni en þriðji og síðasti leikur liðsins er gegn Newtownabbey frá N-Írlandi sem tapaði 7:1 í dag gegn 1. desember frá Portúgal. Breiðablik lagði 1. desember, 4:0, í gær. Önnur umferð UEFA-keppninnar verður leikinn 12.-17. september.

Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði tvívegis í leiknum í dag, fyrra markið kom á 37. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Erna B. Sigurðardóttir annað mark Breiðabliks í leiknum.

Guðlaug Jónsdóttir meiddist í fyrri hálfleik en meiðsli hennar eru ekki talin alvarleg og lék Guðlaug ekki með liðinu í síðari hálfleik. Greta Mjöll bætti við þriðja marki Breiðabliks í upphafi síðari hálfleiks.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is