Íþróttir
|
Landsbankadeild kvenna
| Morgunblaðið
| 17.8.2006
| 5:30
| Uppfært
7:45
Margrét jafnaði 25 ára met Ástu
Margrét Lára Viðarsdóttir. Árni Torfason
Margrét Lára, sem hefur skorað í öllum deildarleikjum Vals í sumar nema einum, hefur tvo leiki til að slá metið. Valskonur eiga eftir að mæta Keflavík og FH í tveimur síðustu umferðunum en þær þurfa að fá fjögur stig í þessum leikjum til að gulltryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Þær ruddu þó stærstu hindruninni úr vegi með sigrinum á KR og í raun ættu þær aðeins að þurfa þrjú stig enn þar sem markatala Vals er svo miklu betri en hjá Breiðabliki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






