Blikastelpur á góðri stundu.
mbl.is/Þorkell
Bikarmeistarar Breiðabliks tryggðu sér í kvöld sæti í úrlslitaleik Visabikarsins í knattspyrnu kvenna er þær lögðu Fjölni að velli 2:0 á Kópavogsvelli. Erna Björk Sigurðardóttir skoraði á 25. mínútu og var staðan 1:0 í leikhléi. Það var svo ekki fyrr en á 87. mínútu að Edda Garðarsdóttir gerði út um leikinn með marki úr vítaspyrnu. Ágæt frammistaða hjá Fjölni sem leikur í næst efstu deild. Breiðablik mætir toppliði Vals í úrslitum og ætti það að verða spennandi úrslitaleikur, enda hafa liðin verið í nokkrum sérflokki í Íslandsmótinu í sumar.