Katrín kemur Val til bjargar

Fyrirliði Vals, Katrín Jónsdóttir, hefur jafnað gegn Stjörnunni á 65. mínútu með laglegu marki og er staðan því orðin 1:1. Katrín fékk boltann inn fyrir vörn Stjörnunnar, óð inn í teiginn hægra megin og lyfti knettinum í fjærhornið. Á Kópavogsvelli hafa bikarmeistarar Breiðabliks tekið forystuna 1:0 gegn 1. deildarliði Fjölnis en sá leikur hófst 17:30.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

finnur.is